http://www.52.is/


LP international Poland latinoamerica Iceland    Hafa samband            Notendur: 20 Virkir, 5 Skráðir inn - Klukkan er: 00:47

zickread bloggið

Nýr á 52.is? Skráðu þig hér, ókeypis!
rss
stórmót
  HaukurMar, Sep 23 2011





0 votes

Athugasemdir (2)


EMOP Portugal
  HaukurMar, Feb 01 2011

Jæja þá er þessi Carlsberg mótaröð búin, og engin smá spenna undir lokin, bæði Steinar Bragi og Stefán Snær náðu rosalegum árangri í næstsíðasta mótinu þar sem Steinar náði að koma sér úr 2bb og vinna mótið og Stefán í þriðja sæti sem gerði síðasta mótið hrikalega spennandi en það hafðist sem betur fer ekki hjá þeim og ég náði að vinna mótaröðina og næla mér í miða fyrir EMOP Portugal núna næstkomandi mars.

Buy in er eins og flestir vita 1100€ sem samsvarar ca 175k á núverandi gengi og hefur pricepool verið mjög gott í þessum mótum og til mikils að vinna.

Þetta mun verða þriðja EMOP mótið sem ég spila og hef góða tilfinningu fyrir þessu móti þar sem að maður er farinn að þekkja strúktúrinn ágætlega og hef líka bara spilað vel þarna en svo lent í leiðinda coolerum

ég er ekki búinn að ákveða hvort ég ætli að selja hlut í mér en mun eflaust gera það samt sem áður en samt ekki meira en 30%.

Hverjir hafa áhuga á að kaupa hlut í mér?, endilega kommentið eða sendið mér skilaboð.



0 votes

Athugasemdir (2)


Allt tilbúið fyrir EMOP Barcelona
  HaukurMar, Sep 03 2010

Jæja þá er allt tilbúið fyrir Barcelona ferðina góðu.

Búinn að panta og borga fyrir flugið út sem kostaði heilar 56þ kr fram og til baka, þökk sé fjölda flugpunkta á kreditkortinu mínu, sparaði mér þarna 20þ

Við förum út þann 21. sep. og flýg til kaupmannahöfn og tek svo flug þaðan til Barcelona.

Ég náði líka að redda okkur flottri íbúð sem er í göngufæri við Casino-ið og ströndinni fyrir lítinn pening, en við verðum 4 í þessari íbúð í 11 nætur og það kostar okkur aðeins 1100 evrur eða 275 á mann sem er 41þ samkvæmt genginu í dag, ekki slæmt fyrir 11 nætur.

Einnig er ég búinn að kaupa mig inn í mótið í gegnum Pokerhills en ætla samt að reyna sattla mig inn í gegnum skref 4 á Gullöldinni þar sem ég á svoleiðis miða.

Svo er ég ekki búinn að ákveða mig hvort ég vilji selja hlut í mér, búinn að fá nokkur boð um það en ég tími varla að selja meira en 20% þar sem að ég ætla mér að taka niður þetta mót og þá verður leiðinlegt að þurfa shippa stórri upphæð á sponsors

Það er ekki nógu mikið um side eventa þarna að mínu mati, en ég mun líklega taka þátt í 2-3 af þeim, en það eru 100€ 50€ rebuy og 60€ freezeout, og svo ef vel gengur þá er eitt 500€ líka.

Annars ætla ég að spila eitthvað cash, chilla í sólinni og hafa gaman.

Er orðinn alveg super psyched þar sem að þetta er fyrsta stóra mótið sem ég fer í erlendis og verður gaman að sjá hvernig manni gengur, ég reikna því með þvílíkt góðum stuðningi og jákvæðum hugsunum frá ykkur sem eru ekki að fara er nefnilega búinn að undirbúa mig mjög mikið undir þetta, bæði andlega og líkamlega, visualize the win baby! :D

Svo spillir ekki fyrir því að maður fær að æfa sig með stóru móti á morgun á Players með sama strúktúr og EMOP

zickread over and out!



0 votes

Athugasemdir (8)




Næsta síða


Höfundaréttur © 2012. 52.is Allur réttur áskilinn
Hafa samband Leiðarvísir